Indverskt tómatsalat
Mynd kemur síðar...
Þetta er frábært tómatsalat sem gott er að borða með t.d. naanbrauði eða sem meðlæti með mat.
Innihald
- 3 msk matarolía (corn oil)
- 1 msk cuminfræ eða sinnepsfræ
- 1/2 msk turmeric duft
- Hita olíuna í potti og setja síðan fræin útí. Þegar heyrist "pop" þá skal strax taka af hellunni (varúð, ekki brenna fræin). Síðan skal setja turmeric duftið útí og hræra.
- 6-8 tómatar, smátt skornir
- 2 laukar, smátt skornir
- ferskt kóríander, skorið smátt
- 2 bollar hrein jógúrt
- 2 græn chili (eða duft), smátt skorið
- salt eftir þörfum
- Blanda þessum hráefnum saman í skál og síðan að blanda #1 samanvið, hræra.