Heitur skinku- og aspasréttur
Mynd vantar...
Týpískur heitur skinkuréttur í afmælið eða saumaklúbbinn.
Magnið hér miðast við ca. 1 eldfast mót.
Innihald og eldun
Brauð án skorpu
1 dós sveppasmurostur
Niðursoðinn grænn aspas
1 dl rjómi
Skinka
Papríka
Rifinn ostur
- Smyrja botn.
- Setja brauð í botn án skorpu
- Setja í pott: 1 dós sveppasmurost, soði af aspas og 1 dl rjómi – hræra vel saman.
- Bæta útí: niðurskorna skinku, aspas og papríku.
- Hella ofaná brauðið, skella osti yfir og inn í ofn.
- Ofn 180°C í ca. 30 mín.