Einföld, saðsöm og sjúklega góð kjúklingasúpa


Þetta er einstaklega matarmikil súpa og alveg rosaleg góð!

Einnig er rosalega gott að hafa nachos með til brjóta út í súpuna.

Fann þessa í Fréttablaðinu.

Innihald

2 kjúklingabringur, skornar í bita

2-3 gulrætur skornar í sneiðar

1/4 rófa skorin í litla bita

2-3 kartöflur skornar í litla bita

púrrulaukur

1/3 stór sæt kartafla skorin í bita

paprika

2 hvítlauksrif

1/2 tsk karry

1/3 flaska heinz chillisósa

súputeningur

1 dós kókosmjólk

2-3 glös vatn

salt og pipar

Aðferð:

1. Steikið kjúklinginn og leggið hann til hliðar.

2. Steikið hvítlauksrif og karrý saman í smá stund, bætið svo grænmetinu við (fyrir utan paprikuna), veltið og steikið aðeins.

3. Bætið paprikukunni við og steikið örlítið.

4. Bætið vatni við svo að það fljóti yfir.

5. Svo er chillisósunni bætt við, súputening eða kjúklingakrafti.

6. Smá salt og pipar eftir smekk.

7. Ef að maður vill gera meira úr þessu er hægt að setja dós af tómötum út í. (Líka gott að setja smá tómatpúrru ef hún er til.)

8. Látið malla í ca 20 mín, setjið kókosmjólk og kjúlla út í og hitið aðeins, ekki láta sjóða.



Uppskrift frá Pressunni.