Innihald og bakstur
a) Botnar:
4 stk eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
2 bollar kornfleks
Stífþeyta eggjahvítur og blanda sykrinum smátt saman við.
Blanda svo kornfleksinu varlega útí með sleif.
Setja bökunarpappír í 2 álform og hella deiginu útí.
Baka við 150°C í 45-60 mín.
b) Fylling:
1 peli þeyttur rjómi
1 peli súkkulaðirúsínur
---> blandað saman og sett á milli botnanna.
c) Brætt rjómasúkkulaði, 1-2 plötur
Aðferð:
Tveir botnar mótaðir og bakaðir í 150°C í ca. 50 mín.
Fyllingin sett á milli.
Hella yfir brædda rjómasúkkulaðinu.