Mynd kemur síðar...
Þetta er frábært tómatsalat sem gott er að borða með t.d. naanbrauði eða sem meðlæti með mat.
Innihald
3 msk matarolía (corn oil)
1 msk cuminfræ eða sinnepsfræ
1/2 msk turmeric duft
Hita olíuna í potti og setja síðan fræin útí. Þegar heyrist "pop" þá skal strax taka af hellunni (varúð, ekki brenna fræin). Síðan skal setja turmeric duftið útí og hræra.
6-8 tómatar, smátt skornir
2 laukar, smátt skornir
ferskt kóríander, skorið smátt
2 bollar hrein jógúrt
2 græn chili (eða duft), smátt skorið
salt eftir þörfum
Blanda þessum hráefnum saman í skál og síðan að blanda #1 samanvið, hræra.