Tebollur

Dúnmjúkar gamaldags tebollur með rúsínum (um það bil 22 bollur)

  • 200 gr mjúkt smjör
  • 200 gr sykur
  • 3 egg
  • 1/2 tsk sítrónudropar
  • 1 tsk vanilludropar
  • 400 gr hveiti
  • 1 msk lyftiduft
  • 1/2 tsk salt
  • 1 dl mjólk
  • 200 gr rúsínur (Má líka nota súkkulaði í staðin fyrir rúsínur)

Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður með blæstri. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst, alveg í 3-5 mínútur í hrærivél. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Bætið sítrónu, og vanilludropum saman við. Hrærið hveitinu, saltinu og lyftiduftinu saman og bætið að lokum út í ásamt mjólkinni og rúsínum.

Hrærið þar til allt blandast vel saman, en gætið þess að hræra ekki mikið eftir að hveitið er komið út í, bara þannig að allt sé komið saman. Setjið deigið með tveimur matskeiðum eða stórri ísskeið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Hver bolla hjá var ca. tvær vel fullar matskeiðar af deigi. Bakið í 8-10 mínútur eða þar til bakaðar í gegn og fallega ljósgullinbrúnar.