Geggjuð uppskift frá Ostahúsinu (sjá www.ostahusid.is).
Borið fram með grænu salati (t.d. grand-salati) og góðu brauði.
Innihald
4 stórar paprikur, gjarna mismunandi litar
3 msk ólífuolía
200 g kúskús
vatn eftir þörfum
safi úr 1 sítrónu
nýmalaður pipar
salt
150 g konfekttómatar (eða venjulegir)
2 vorlaukar
½ knippi steinselja, söxuð
1 ostarúlla með blönduðum pipar (eða mango og jalapeno) frá Ostahúsinu
Aðferð
Ofninn hitaður í 180°C.
Paprikurnar skornar í tvennt eftir endilöngu, stilkur, kjarni og fræ fjarlægt og þær síðan penslaðar með 1 msk af olíu og raðað í eldfast mót.
Kúskúsið sett í skál, sjóðandi vatni hellt yfir samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og látið standa í um 5 mínútur. Þá er sítrónusafa, 2 msk af olíu, pipar og salti hrært saman við. Tómatarnir, vorlaukurinn og steinseljan söxuð smátt og blandað saman við.
Paprikurnar fylltar með kúskúsblöndunni og síðan er ostarúllan skorin í sneiðar og 1-2 sneiðar settar ofan á hvern paprikuhelming.
Sett í ofninn og bakað í 20-25 mínútur.
Borið fram með grænu salati (t.d. grand-salati) og góðu brauði.